bobo-blogg

vilkommen

21.04.2008 23:42:36 / goeoak

STRUMPAPRÓF...

You have a PAPA SMURF personality!
Papa Smurf

» 1 hafa sagt sína skoðun

09.04.2008 23:45:30 / goeoak

Viljið þið blogg á hverjum degi hee

Haha hef bara ekki undan að lesa kommentin. sko það sem ég var búin að drita niður í fyrradag en hverfaðist svo var í grófum dráttum ca bát svona. Sko í nóvember fórum við Jóhanna systir til Norge að heimsækja Ásu frænku. Þar vorum við í góðu yfirlæti hjá henni og vorum sko ekki sveltar hee, ónei þvert á móti. Við skelltum okkur í verlsunarleiðangur dauðans þar sem kveikt var í öllum kortum sem fyrir hendi voru og kíktum meira að segja á djammið þar. Og Norðmenn taka sko strætó á djammið og svo síðasta strætó heim,, hee sæji það gerast hér heima NOT. :d. Þetta var bara fín helgarferð og gott að komast aðeins í burtu frá öllu stressinu hér heima í stressið við að versla úti haha:haha:.

Svo byrjaði mín í prófum fljótlega eftir þessa frábæru ferð og gekk mér bara vel í prófunum, náði öllu sko :). Eftir prófin var ég bara að vinna á mínum gamla vinnustað, sjúkraskrásafninu á LSH, og hafði það bara gott um jólin. En mikið var nú gott að koma aftur í skólann,, mar verður pínu vængbrotinn án skólafélgana verð ég að segja. Í lok janúar var svo fyrsta vísindaferðin og þar var skrallað af einstakri snilld eins og okkur skólafélögunum er einum lagið. Stuttu síðar héldum við í stýró síðan þorrablót sem byrjaði afskaplega vel,, það var sungið og trallað og Árni Johnsen var á meðal okkar með gítarinn við hönd. En síðan varð fjandinn laus og endaði dæmið með blóðugum slagsmálum hjá þessum karlhormónum. Jeminn eini,, hvað er málið með karlmenn og slagsmál shetturinn....og slagsmálin héldu áfram á Players og svo héldu þau áfram niðri í bæ .. Allt gleymt á mánudegi og allir vinir og hlógu bara að þessu haha. Fleiri skröll hafa nú verið og öll hafa þau verið soldið hormónaleg tíhí:$. Mig er farið að kvíða pínu fyrir föstudeginu næstkomandi en þá höldum við árshátíð og það á Kringlukránni haha.. Hvernig endar það nú. Þurfum kannski að biðja sérsveitina um að vera í viðbragðsstöðu hahahaha:lol:.

En jæja nenni ekki að blogga meira í bili,, líka best að hætta áður en allt hverfast burt tíhí

Lofa að vera duglegri að blogga framvegis og kannski kemur pistill eftir árshátíðina:haha:

 Bóbó óver end át8|

» 5 hafa sagt sína skoðun

08.04.2008 20:04:31 / goeoak

ARRRGGG

Sko ég var búin að skrifa fullt og svo datt það út djö mar. Geri aðra tilraun við betra tækifæri þegar blóðþrýstingurinn er orðinn lægri :^)

» 6 hafa sagt sína skoðun

11.09.2007 00:20:06 / goeoak

HÆ HÓ HÆ HÓ ÆM ALÆF!

Verið öll róleg mar,, það er nú bara rúmlega kortér og 2 mánuðir since my last confession heheheeh...8|. En það sem ber nú hæst síðan síðast er að mínums gerði nú ýmislegt sneðugt í sumar sko. Í lok júlí fór ég nú á Grundarfjarðardaga með Emmu vinkonu og skemmti mér alveg konunglega þar enda ekki annað hægt þar sem félagsskapurinn var hinn skemmtilegasti. Ég gisti hjá vinafólki Emmu sem er nú með eindæmum gestrisið fólk og hresst og skemmtilegt, enda hló ég mikið mikið mikið. Þar hitti ég nú líka nokkra skólafélaga sem var nú ekki leiðinlegt þar sem ég var nú komin með skelfileg fráhvarfseinkenni frá skólanum :frown:. Mikið gaman mikið fjör. Nú svo helgina eftir þessa frábæru skemmtun lá nú leiðin á ekki leiðinlegri stað sko.. Mínums skellti sér nú bara á þjóðhátíð í Eyjum og dró Bellu frænku og Þurý vinkonu með og ég veit að Bella verður mér allavega ævinlega þakklát fyrir að hafa platað hana þangað ,,, henni fannst allt fyndið tíhí:lol:. Þar fengum við nú gistingu hjá alveg frábærum náunga sem heitir Helgi, og er hann frændi eins af vinum mínum úr skólanum. Þar vorum við nú í algjöru dekri,  okkur var boðið í mat öll kvöldin og skemmtum okkur alveg brjálæðislega vel skal ég ykkur segja, enda alltaf gaman í Eyjum og það jafnast sko ekkert á við þjóðhátíð :D. Og boj ó boj vitiði hvað... OMG Toby var nottla þarna með Magna og Á móti sól og ég hitti hann nú og fékk eitt stykki mynd af okkur saman ásamt því að fá sopa hjá honum af Tópas/slefi swing. Vá þessu mómenti mun ég seint gleyma mar,, þvílíkur foli sem þessi maður er shetturinn titturinn. GRRRRRRRRRR BEIBÍ SLEF SLEF. Sorry bara aðeins að slefa hérna tíhí.. En já þessi helgi var með öllu vel heppnuð og ofboðslega skemmtileg og hlakka ég mikið til að fara aftur til Éyja 8|.  Nú svo skellti ég mér til Húsavíkur vikuna áður en skólinn byrjaði aftur með guttana mína, Guggu , Ómari (kærastanum hennar Guggu) og nottla Ivy og var það voðalega notalegt.. Gott að komast út úr stressinu og brjálæðinu hérna í borginni.  Nú og svo byrjaði skólinn 20 ágúst og mikið var það nú góð tilfinning,, að hitta alla skólafélagana aftur var bara æði :D. Og nottla fylgir því nú pínu djamm hehe og fyrsta djammið var nú bara síðasta föstudag og var farið í siglingu með Eldingu II og var það alveg rosa gaman. Fengum að veiða og alles,, ég veiddi nú bara trítil en það voru nokkrir sem veiddu ágætann þorsk :haha:. Nú eftir siglinguna var haldið á Players þar sem Greifarnir voru að spila og þar hélt skrallið áfram fram á rauða nótt og þar var nú stigið létt spor og hlegið mikið ,, það er soldið spes að djamma bara með strákum og já ég var bara ein með strákunum á Players. Ein beilaði að koma þangað og önnur stoppaði stutt .. En ég var sko ekki til í að slútta djamminu snemma ,, ónei ónei. æm a djammer :$. Var komin heim tæplega 5 og vaknaði rúmlega 10 og dröslaðist síðan út um 1 leitið og fór að hjállpa Bjarna brósa og co að flytja,, en þau voru að yfirgefa Kópavog og flytja í Grundarfjörð :D og vill bara óska þeim alls hins besta  og lukku með það. Þau eiga örugglega eftir að njóta þess að búa þar.

En jæja nenni ekki að skrifa meira,, er komin með sinaskeiðabólgu eða ekkað við allt pikkeríið hehe:$. Verið þið bara öll blessuð og sæl og gerið allt sem ég myndi gera elskurnar mínar tíhí´

P.S.  Ó já gleymdi nú að segja ykkur að ég og Jóhanna systir ætlum að skella okkur til Noregs 14-19 nóvember að heimsækja frænku okkar þar.. OMG hvað mig hlakkar til að fara til úglanda tíhí jíha:haha:.

En nú er ég hætt í bili

                          HILSEN BÓBÓ ÓVER END ÁT :haha:8| 


» 6 hafa sagt sína skoðun

06.07.2007 17:09:33 / goeoak

WORKING GIRL!

Jæja það er best að blogga smá fyrst fólk er farið að hóta manni að fá ekki inngöngu á skemmtistaði bæjarins hehe.. Bara sorry folks er bara búin að vera að vinna skiluru og aðeins farið út á land sko. Lítið búið að gerast hjá mínums undanfarið og lítið sem ekkert djammað. Fór þar síðustu helgi í Þórsmörk eina nótt og náði nú að halda liðinu þar vakandi aðeins fram eftir hehe og það vara bara voða gaman. Nú og svo síðustu helgi skellti ég mér vestur í Dýrafjörð á Dýrafjarðardagana, það var voða gott að komast aðeins burt úr bænum í "kyrrðina" fyrir vestan. Við vorum þar frá fimmtudegi fram á sunnudag ég , guttarnir mínir og Jóhanna systir. Skelltum okkur í smá golf, dorguðum á bryggjunni þar sem ég veiddi nú 2 strumpa þorska og 1 lítinn trítil, svo var dorgveiðikeppni á laugardeginum en þar veiddu nú guttarnir ekkert. Á laugardagskveldinu var svo haldin grillveisla á Víkingasvæðinu og voru þar skemmtiatriði og nottla sungið og trallað. Fór svo heim með grísina rétt fyrir miðnætti til að svæfa minnsta strump og sofnaði með honum hehe ógurlega kósí þangað til sængin var rifin af mér rúmlega 1 og ég skoppaði hálf sofandi fram og skellti í mig flösku af moscato freyðivíni, fékk reyndar 1 glas í klofið því Bella frænka er soldil brussa tíhíh, en ég henti buxunum bara á ofninn og skellti mér svo í þær áður en við fórum á pöbbinn um 2. Ég var svo komin heim um 4 ennþá hálf sofandi tíhí og sofnaði værum blundi ;).

Nú svo mætti ég til vinnu á mánudag og er bara búin að vera að vinna. Fer svo í kvöld á Kf Nörd sem verður örugglega hin besta skemmtun. Væri nú samt til í að vera á Akureyri núna með miðjustrumpnum því hann er að keppa á N1 mótinu þar, ég bara komst ekki með sökum fátæktrar aldrei þessu vant búhú :cry:. Svona er lífið stundum ojojojojojoj.

En það er pabbahelgi núna og étla að gera e-hvað gott úr henni og taka bara til, skella mér í bústaðinn til Bjarna brósa í afmælisveislu hjá guttunum hans þeim Einari og Inda sem eiga afmæli 4 og 11 júlí og éta köku múhahahahah.. alltaf í ÁTTAKI HEHE.

 Veit ekki hvort það verði djammað e-hvað um helgina , það verður bara að koma í ljós.

 En ég bið að heilsa ykkur í bili, ég er enn á lífi þó ég sé ekkert sérlega spræk þessa dagana, en ég lofa að bæta úr því key.  Og já svo er ég að fara á Þjóðhátíð í Eyjum eftir 27 daga víhú mig hlakkar svo til jei :lol:.

                              BOBO OVER END ÁT:haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

31.05.2007 20:45:19 / goeoak

JÆJA HÉR ER ÉG BÚIN Í SKÓLANUM OG DAUÐLANGAR Á SJÓINN

Hæ og hó. Jæja komin mánuður síðan ég bloggaði síðast en ég er bara búin að vera ógó bissí sko. Mínums kláraði nú prófin þann 10 maí og af 11 áföngum féll ég nú bara í 1 og það var veðurfræði, sem ég vissi nú alveg að ég myndi ekki ná sökum áhugaleysis tíhí:evil:. En hér eru einkunnirnar mínar

 AFLAMEÐFERР                      10

HAFFRÆÐI                              9

HEILBRIGÐISFRÆÐI                 8

íSLENSKA                                8

MENGUN                                 5,, ÚPS

SIGLINGATÆKI                        8

SJÁVARÚTVEGUR                     9

SJÓMENNSKA                         10

SKIPSTJÓRN                           7

STÖÐUGLEIKI SKIPA                9

Jæja get nú ekki annað en verið ánægð með þessar einkunnir ,, fyrir utan mengunarslysið þarna. En þó flestum finnist það skrítið þá sakna ég skólans og vona að sumarið verði fljótt að líða.

Í síðustu viku,, 21-25 maí, var ég í slysavarnaskóla sjómanna. Það var hrikalega gaman og það sem stóð upp úr þar var reykköfunin sem var ógó gaman , hoppa í sjóinn í flotgöllum og príla í björgunarbát og einnig að láta hvolfa sér í honum :lol:, og að lokum að vera bjargað úr björgunarbát í þyrlu. Djö var það mikið adrenalínkikk. Hlakka sko til að fara í framhald í slysavarnaskólanum shetturinn titturinn..

En nú er bara skólinn búinn,, næstum allir skólafélagarnir farnir til síns heima eða út á sjó og mar er eins og vængbrotinn fugl þessa dagana,, arrgg hvernig kemst mar í gegnum sumarið sveijattann. Og svo langar mig svoooooooo geðveikislega að fara á sjóinn, en ég þarf að hanga í gömlu vinnunni á skítalaunum í alllllltttttt sumar ojojojoj, nema að undur og stórmerki gerist og einhver vill ráða mig á góðann dall :haha:.

Úff en ég nenni ekki að skrifa meira í bili, er barasta þunglynd, eirðarlaus og leið. OG ÉG SKAL KOMAST EITTHVAÐ Á SJÓINN Í SUMAR.. or else..................:$.

 

                           ADIOS AMIGOS, KAPTEINN SPARROW 8)


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.05.2007 12:01:01 / goeoak

BÚIN AÐ FÁ ÚT ÚR 3 SÍMATS ÁFÖNGUM JEI...

Jæja hvað segiði gott. Allt gott að frétta af mínums, var að klára fyrsta prófið mitt af 5 og gekk svona lala enda var þetta veðurfræðipróf jæks. En ég er búin að ná 4 fögum sem voru símats áfangar og er komin lokaeinkunn úr 3 af þeim. Sko eitt þeirra var ég nú bara með hálfan huga við því ég var nýkomin úr aðgerðinni þegar ég tók fyrsta prófið:cry: en það var fag sem kallast Skipstjórn, lokaeinkun mín í því fagi er 7, svo sem allt í lagi. Hin tvö komu mun betur út sko. Í Aflavinnslu fékk ég 10 í lokaeinkunn og í Haffræði 9 í lokaeinkunn. Get nú ekki annað en verið ánægð með það sko. Svo veit ég að ég er búin að ná Stöðugleika skipa en lokaeinkunn liggur ekki fyrir fyrr en eftir sjúkraprófin, er að vona að ég fái 9 því í þessum 3 prófum sem ég tók yfir önnina var ég með 9, 8 og svo 10, svo er nottla mæting metin og verkefnaskil. :lol:.

 Nú á ég bara 4 próf eftir og á morgun er það Mengunarvarnir ojoj leiðinlegur áfangi jæks, á föstudag er svo Íslenskupróf boring tú,, ojojoj,, svo fer ég í tvö próf eftir helgi í Heilbrigðisfræði á mánudag og svo bóklegt próf í Siglingartæki á fimmtudag, fékk nota bene 8 í verklega prófinu þar ;).  Mér gengur vonum framar í náminu því þegar ég byrjaði í haust átti ég sko enga von á því að heilinn í mér væri enn starfandi,, hann var nebblega ekkert rosalega ferskur hér á árum áður,, kannski var það eintómt áhugaleysi humm:$. Ég fíla þetta nám sko í frumeindir þetta er svo skemmtilegt og ég er bara farin að iða í skinninu að komast á sjóinn, veit að mörgum eða meira svona öllum finnst ég klikk eða skrítinn eða bara bæði en ég er bara eins og ég er sorry 8|.

Svo er nú eitt sem ég er bara að deyja úr spenningi eftir, og það er námskeið hjá Slysarvarnarskóla Íslands. Þar erum við að fara nokkur saman úr skólanum vikuna 21-25 maí og það verður geðveikt stuð. Hoppa í sjóinn, björgun í þyrlu og ég veit ekki hvað og hvað. Ég veit ég veit ég held að ég hafi átt að vera strákur, er sko ekki með lítið af svoleiðis dellum í mér hehe. Ég er með sportbíladellu, fótboltadellu, handboltadellu, vill gegt öflugar græjur í brummann minn, uh já og er í Stýrimannaskólanum og langar á sjóinn og þá ekki sem kokkur takk fyrir sama og þvegið ojojojj.. :lol:. En þið sem mig þekkið vitið alveg að ég er samt ekki gay, bestasta skinn hehe,, reyndar með smá þurrk hér og þar :$, og oggólítið steikt í bland við klikk og dash af kjánapriki 8|.

En jæja best að fara að læra undir þessa blessuðu mengun svo ég geti horft á leikinn í kvöld með góðri samvisku,, sko stórleikur þokkalega Manchester United-AC Milan,, sem við Mannarnir tökum nottla með annari sko, eða einari frænda tíhíhí.

Bið að heilsa ykkur í bili elskurnar mínar,, brosið nú framan í heiminn og næsta mann og verið góð við hvert annað ,, því þið vitið að öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir ;).

           Bobo the purple alien óver end át 8|


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.04.2007 19:59:28 / goeoak

ÉG ER HÉR ENN MÍNIR KÆRU.!

Jójó hellú.. Hvað segiði gott elskurnar mínar. Nú ég var víst búin að lofa því að blogga eftir árshátíð stýrimanna sem var haldin síðustu helgi með glæsibrag á Fjörukránni.. Mín mætti í heavy kjól og var eins og kramin síld í dós í þessari múnderingu, en voða fín eitthvað og dönnuð, bött off kors. Mar er sko ekki nógu mikil dama í sér til að vera í þessu en mínums tókst að djúsa og dansa í þessu hylki og án þess NOTA BENE að breytast í Gyðu Sól tíhí. Maturinn var nú bara hinn besti og var mikið fjör mikið hlegið og mikið gaman. Eftir allt átið var haldið á neðri hæð hússins þar sem enginn annar en Rúnar Þór var að spila með e-hverjum gaur sem ég hef ekki hugmynd um hver er. Það var dansað og tjúttað og einhverjir fóru nú bara úr buxunum,, væntalega vegna hita, og svo þegar þessari skemmtun lauk fórum við nokkur sem vildum sko ekki hætta djamminu heim til mínums,, en ekki hvert, þar sem við djúsuðum smá áður en þreyta læddist yfir liðið og hausarnir duttu niður einn af öðrum eins og domino kubbar hehehe8|.

Nú svo á laugardaginn var nú heldur betur haldið áfram að skralla sko. OBOJ OBOJ, við fórum í party uppi á vistinni í skólanum og byrjaði það heldur rólega,, glápt á imbann fyrst um sinn en síðan þegar skotin fóru að renna um æðar fólks byrjaði sko fjörið heldur betur. Þá var kominn tónlist og læti og mar var komin í dans og sveiflaði fram og til baka milli manns og annanns og snúið í hringi, shetturinn ekki gott fyrir heiladingulinn minn að fá sheiken færeyjar syndrome:$. En svo kom Þórður húsvörður og rak okkur út eftir kl 1 eða eitthvað og við héldum niður í eldheitann bæinn og fórum á Hressó, sem var smóken hot bæ þe vei, og við vorum nú ekki alveg að fíla okkur þar og það endaði bara með að fá sér pizzu heima hjá gess hú..... 8).

En jæja svo er mar bara búin að vera í prófum og nottla brillera þar eins og ætti nú ekki að koma neinum á óvart og er sko mín bara búin að ná öllum símats áföngunum og þarf því ekki að mæta í nema 5 próf. sem er nokkuð gott miðað við að vera í 11 áföngum :lol:.

úff er orðin þreytt í fingrunum á að blogga þessa vitleysu og ég skal lofa að hafa styttra í næsta blogg elsku krúsímúsí dúllurnar mínar..

      Bobo the purple alien óver end át :$


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.04.2007 20:58:21 / goeoak

LONG TIME NO WRITE HEHE !

Nei komið þið öll blessuð og sæl. Veit að ég hef ekki verið dugleg að blogga en það hefur nú bara verið alveg svakalega mikið að gera, sko þá aðallega í djamminu sko. En tja það sem helst hefur drifið á mína daga er að í byrjun febrúar fór ég í smá nip/tuck og lét fjarlægja svuntuna leiðinlegu og sjúga smá síðuspik í leiðinni hehe. Það tókst nú bara mjög vel og ég þokkalega ánægð með að hafa drifið mig í þetta dæmi. Get bráðum hætt að nota spikiníið og treð mér í staðinn í bikini hehehehehe... En nú jæja svo var það í byrjun mars, nánar tiltekið þann 9, að ég fór með mínum skemmtilegu og hressu skólafélögum til Færeyja í vísindaferð. Men ó men var það gaman mar, shetturinn titturinn.. Ég drakk nú flesta gæjana undir borðið, en ekki hvað, og fór síðust að sofa 2 kvöld af 3 alla vega af þeim sem fóru að sofa hehe.. Þetta var bara mögnuð ferð og verður vonandi endurtekinn að ári liðnu, ég fílað dilla dilla hehe.. En ég varð reyndar fyrir því óláni að týna geislabaugnum mínum þarna úti og ég held að ég fái hann ekki aftur,, týndi líka heilsunni og meltingunni þar en fékk hana senda heim með Fedex nokkrum dögum eftir heimkomu hehe.. lökkí mí.. Nú og svo uppgötvaði ég Hvergilandið mitt en ég sofnaði einmitt þar víst kvöld eitt hahahaha:$. Mikið lifandi skelfingar ósköp er gaman að vera svolítið hífaður! 

En á næsta leiti er svo árshátíð okkar stýrimanna,, hún verður haldin núna 20 apríl og á mar nú ekki von á neinu öðru en frábærri skemmtun. Ekki annað hægt í þessum frábæra hópi krakka sem mar er búin að kynnast í skólanum, allir voða miklir vinir og kunnum sko að skemmta okkur og öðrum hehe... Ég hlakka mikið til enda mjög langt síðan mar fór á árshátíð síðast því það er nú ekkert um svoleiðis í vinnunni minni gömlu, sem ég nota bene verð að vinna í sumar... Hefði nú viljað fara á sjóinn en er líklega aðeins of sein að athuga það.. ojojoj fúlt mar...

En nenni ekki að pikka meira inn í bili,, skal nú samt reyna að blogga sem fyrst aftur og jafnvel bara fljótlega eftri árshátíðina og segja ykkur stuttlega frá þeirri skemmtun og lífsreynslu hehe..

 

                                         Bóbó óver end át .!;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

18.01.2007 23:16:53 / goeoak

2007

Hó hó það er víst komið árið 2007 sem þýðir að ég hef ekkert bloggað síðan í fyrra sko.. öss öss ekki gott mál:$. Mar datt nú bara í leti í þessu 3ja vikna jólafríi og breyttist bara í sófadýr og með því. Ég hélt nú reyndar þrettándagleðiparty þar sem ég bauð nú öllum mínum vinum,, en nei ég komst að því að ég á enga vini .. nema 2 sem heita Erla og Emma..... hreinn hégómi að mar bjóði í teiti með veitingum og læti og það bara mæta bara 2 af sko tja ca rúmlega 20 manns .. En ég veit hverjir eru vinir mínir og það eru skólafélagarnir mínir, það mættu nú alveg 5 úr skólanum og þeir sem ekki mættu voru bara enn úti á landi í jólafríi eða úti á sjó með löglega afsökun sko..... Sveijattann held sko ekki party aftur.   Eða er þetta kannski aldurinn , liðið komið nottla á fertugsaldurinn og farið að bera á beinþynningu, þreytu og svo hávaðafóbíu. Ég skal segja ykkur það og ég bara enn eins og ég sé tuttugu og eitthvað:$. En ég vona nú að þetta sé nú bara eitthvað feis sem þessir svokölluðu vinir mínir eru að ganga í gegnum því þau eiga nú enn að vera ung og spræk þó flestir séu nú í sambandi eða giftir og komin með börn, sem er nú léleg afsökun því ég á nú 3 sjálf og get nú alveg lifað félagslífi fyrir því... Það er sko nægur tími þegar mar er komin í kringum fimmtugt að fara að vera heimakær yfir Hemma Gunn og svoleiðis þáttum í staðinn fyrir að fara að skemmta sér svolítið.  HEY ÞIÐ ÞARNA ÚTI,,, NJÓTIÐ FÉLAGSLÍFSINS MEÐAN ÞIÐ ERUÐ MEÐ HEILSU TIL OG GETIÐ HREYFT Á YKKUR LAPPIRNAR OG MJAÐMIRNAR...

Bóbó  the friendlyless alien óver end át


» 6 hafa sagt sína skoðun

24.12.2006 02:28:40 / goeoak

GLEÐILEG JÓL.!

Kæru vinir, ættingjar og aðrar geimverjur. Ég óska ykkur öllum nær og fjær gleðilegra jóla :lo. Hafði það súper gott og verið þið nú öll góð hvert við annað því öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir key....

Kveðja Guðrún stýrverja ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.12.2006 21:19:42 / goeoak

EINKUNNIRNAR MÍNAR ERU ALLAR KOMNAR!!!!!!!!!!

Jæja nú er mínums búin að fá allar einkunnirnar og ég skal vera ófeimin við að sýna ykkur þær

Fjarskipti                          8

Náttúrufræði                    8

Rafmagnsfræði                 8

Siglingareglur                   8

Sjómennska                       9

Sjóréttur                            7

Stærðfræði                        6

Vélstjórn                           9

Skólasókn                         9 =  1 eining

     Hvurn hefði grunað að það væri eitthvað þarna uppi ennþá í mínum litla heila hehehehehehehehehe....

                  Bóbó óver end át..


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.12.2006 17:11:41 / goeoak

PRÓF PRÓF PRÓF!

Hehehehehe ég er nú sko aldeilis ekki dauð mar. Er bara búin að vera á kafi í prófum og á enn eftir 3 kvekendi, 5 dán og er ég búin að fá að vita lokaeinkunn í sjómennsku og vélstjórn en ég fékk 9 í þeim. Get ekki annað en verið ánægð með það þar sem ég var alveg viss um að falla í vélstjórn tíhí.. Hurðu og svo er þetta önnur djammlausa helgin í röð hjá mér, sveijattann verð að taka á því þegar prófin eru búin sko og þá verður smalað liði saman og tekið ærlega á til að halda upp á hvað jólin eru skammt undan hehehe. Skál fyrir því. En ætli það sé nú ekki best að halda áfram að læra, er að fara í próf í sjórétti í fyrramálið (mánudag) og mar ætlar nú að reyna við 9 þar líka sko hehehe. Og já hurðu hún Gugga systir var að útskrifast úr lögguskólanum á föstudaginn var og óska ég henni aftur innilega til hamingju með það,, passið ykkur þarna úti á skerí blond löggunni ,, she´s an animal hehehe..

jæja blogga meira að prófum loknum mínir kæru a

adios amigos


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.11.2006 23:23:07 / goeoak

GEIMVERJAN ER EKKI DAUÐ.. BOBO IS BACK IN ACTION!

Halló halló allir saman,, sá að það var verið að kvarta undan bloggleysi hjá manni.. Þetta er rétt hjá henni Dísu skvísu með ástæðu bloggleysis, er búin að hafa alveg nóg að gera í sko nottla bött offkors lærdómnum og svo líka á skrallinu þar sem ég er nú bara að kynna mér lífshætti Íslendinga að næturlagi. Það getur nú verið afar athyglisvert skal ég ykkur segja en ekki þegja. En jújú ég fór nú í vísindaferð með skólanum síðastliðinn flöskudag og við fórum í heimsókn í fyrirtæki sem heitir Ísfell og er staðsett í Hafnarfirði. Þaðan fórum við fyrir kl 21 og lá leið okkar í minn ástsæla heimabæ Kópavog á stað sem nefnist því ágæta nafni Players og þar var engin önnur en hljómsveitin Paparnir að spila. Þeir byrjuðu nú reyndar ekki að spila fyrr en eftir miðnætti og þá vorum við búin að fá okkur smá mjólkursopa og vatn og allir voða hressir sko. Við skrölluðum þar alveg þangað til ljósin voru kveikt og þá lá bara leiðin heim til mín í pizzuparty. Þar var mikið hlegið og hlegið meira og mar fór ekki til rekkju fyrr en tja þegar klukkan var langt gengin í 8. öss öss... En mín þurfti svo að vakna fyrir 11 til að fara til Jógu systir sem var svo elskuleg að passa Kristófer fyrir mig,, takk Jóhanna mín :O),, og afhenda hann til ömmu sinnar því hann var að fara til pabba síns. Ég fór nú bara heim og kúrði uppi í sófa til að safna orku fyrir kveldið því ég var sko að fara á Sálarballið á Nasa með Þurý vinkonu minni úr skólanum og 2 vinkonum hennar. Ég verð nú að viðurkenna að mar var nú alveg með smá tremma um kvöldið og var kannski ekki alveg í mjólkursopakeppnisskapi... en svo lagaðist  það allt saman og ég gat alveg skemmt mér konunglega og hitti fullt af fólki sem ég þekkti.. Svo er mar alltaf svo upptekin af því að skemmta sér því það er alltaf svo gaman að mar bara steingleymir að veiða sér lamb eða eitthvað gómsætt múhahahaha.. Þarf að fara að taka með mér veiðarfæri á djammið og góðann háf tíhí.

Og já svo eru nú bara prófin að fara að skella á í þarnæstu viku,, shetturinn það verður skrautlegt.. Var reyndar í verklegu prófi í sjómennsku í dag og var með það bara upp á 10 sagði kennarinn,, er voða ánægð með það. En það er assk náttúruleysisfræðin og stærðfræðin sem ég er mest stressuð fyrir en ég verð bara að leggjast ofan í bækurnar og læra þetta eins og faðir vorið svei mér þá...

Jæja best að fara að koma sér í háttin,, já ég veit að þið trúið því ekki en það er ekkert djamm í kvöld.. Var bara í singstar með Jógu systir og rólegheit :O)

bið að heilsa ykkur í bili Bobo stýrikona!


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.10.2006 10:15:44 / goeoak

FLÖSKUDAGURINN 13....!

Úff mar ætti kannski bara að halda sig innan dyra í dag,, föstudagurinn 13 ..... En jæja vísindaferðin já..,, Hún var farin síðasta flöskudag og mar mætti niður í skóla rétt fyrir 17.00 að staðartíma og þar fékk mar sér einn bjór á meðan beðið var eftir rútunni. Svo kom rútu skrjóðurinn, sem ég hélt að myndi nú gefa upp öndina á leiðinni þvílíkt brak og brestir,, og þar var sötraður annar bjór en ekki hvað. Og ég er nú ekki frá því að fólk og aðrir menn hafi bara verið orðnir soldiði hífaðir við komuna til Grindavíkur, en þangað fórum við í heimsókn í fyrirtæki sem heitir Vísir. Þar var tekið vel á móti okkur með fiskihlaðborði og fljótandi guðaveigum og var vel troðið í sig af því síðarnefnda allavega hehee.. Að fyrirlestri Vísis manna loknum var nú haldið á ný í rútuna og auddað var hent í okkur fljótandi nesti til að hafa með á leiðinni í bæinn. OMG hvað mar gat í sig látið af þessu sulli, shetturinn! Þegar í bæinn var komið voru nú allflestir orðnir rúmlega hífaðir og kl ekki nema eitthvað um 22.00 ca bát. Nú hópurinn splittaðist í tvennt við komuna í bæinn og endaði ég með 6 gaurum á pöbbarölti, ,leiddist það nú alls ekki skal ég ykkur segja,,,, ú heaven is a place on earth hehe... En já ég fílaði mig í ræmur með þessum gaurum og við héldum sullinu áfram og enduðum á Hressó. Og ekki leiðinlegt að vera með 6 gaura upp á arminn múhahahahaha... há jú dúinnn. Sem sagt þessi ferð vara geðveikt skemmtileg, ég aldrei verið eins þunn daginn eftir síðan sautjánhundruð og súrkál og skólann er ég að digga feitt og búin að kynnast fullt af skemmtilegur fólki, þó aðallega karlmönnum hehe. Og já hurðu ég var nú í rafmagnsfræðiprófi í vikunni sem ég hélt að ég myndi fá 0 í en hvað haldiði,, mínums fékk bara 6.2 og ég er bara þokkalega ánægð með það skal ég ykkur segja en ekki þegja.. 

Jæja best að hætta þessu bulli og fara að læra eða eitthvað .. 

 Bobo óver end át. 


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Klukkan
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Dagsetning
15. mars 2010
Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 32707